Fréttir
Hvers vegna er heilbrigði kynjanna mismunandi? Ráðstefna
Fimmtudaginn 18. mars verður haldin málstofa í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri. Umfjöllunarefnið er heilbrigði kynjanna og félagslegar ástæður mismunandi heilbrigðis kynjanna. Málstofan er í Sólborg við Norðurslóð stofu L101 og hefst 12:10 og stendur til 12:55
ATH! Málstofan verður send út í beinni útsendingu á slóðinni mms://media.unak.is/malstofa
Hægt verður að hlusta á fyrirlesturinn á heimasíðu HA www.unak.is daginn eftir flutning.
Það er líklegra til árangurs að hafa jafnt hlutfall kynja í stjórnun fyrirtækja
Konum fjölgar í nefndum og ráðum
Hlutfall kvenna í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins hækkaði mjög milli áranna 2008 og 2009. Er það í kjölfar átaks þar sem þess er gætt í ríkara mæli en áður að hlutfall kynja sé sem jafnast, samkvæmt vef stjórnarráðsins.
Á árinu 2009 voru konur skipaðar í nefndir, ráð og stjórnir í 43% tilvika en karlar í 57% tilvika. Árið 2008 var hlutfall kvenna 24% og karla 76%. Ef litið er á stöðu allra nefnda, ráða og stjórna sem starfandi voru árið 2009 er hlutfall kvenna 32% og karla 68%.
Ráðstefna um kyn og loftslagsbreytingar
Handbók Alþjóðalánastofnunarinnar um samfélagslega ábyrgð og kynjajafnrétti
Útvarpsþáttaröð um konur og sveitarstjórnarmál
Í kjölfar þingsályktunartillögu síðastliðið vor, þar sem Jafnréttisstofu var falið að stuðla að aðgerðum til að auka hlut kvenna í sveitarstjórnum voru gerðir sex útvarpsþættir um stöðu kvenna á sveitarstjórnarstiginu.
Þáttaröðin nefnist Sveitarstjórnarmál - Kjörlendi kvenna en fyrsti þátturinn var sendur í loftið á Rás 1 þann 23. janúar síðastliðinn.
Kvennasáttmáli Sameinuðu þjóðanna
Í tilefni 30 ára afmælis kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna gaf Mannréttindaskrifstofa Íslands út fræðslurit um Kvennasáttmálann. Kvennasáttmálinn tekur til flestra þátta daglegs lífs. Með aðild að sáttmálanum skuldbinda íslensk stjórnvöld sig til að efla stefnu, lög, stofnanir og viðhorf sem tryggja jafnrétti kynjanna; sáttmálinn kveður á um aðgerðir til að koma í veg fyrir mismunun gagnvart konum á öllum sviðum mannlífsins.
Áhugaverð ráðstefna 10.febrúar - Virkjum karla og konur
Eflum lýðræðið - konur í sveitastjórn
Ertu með hugmynd í kollinum? Styrkir til atvinnumála kvenna
Félags- og tryggingamálaráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna. Nánar má lesa um styrkina á síðunni Atvinnumál kvenna þar sem einnig er að finna umsóknareyðublöð, upplýsingar um fyrri úthlutanir o.fl. Umsóknarfrestur er til 7.febrúar 2010.
