Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Það er líklegra til árangurs að hafa jafnt hlutfall kynja í stjórnun fyrirtækja

Það er líklegra til árangurs að hafa jafnt hlutfall kynja í stjórnun fyrirtækja og hefur auk þess jákvæð árangur á skilvirkni og vinnulag. Þetta segir Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjárfestingarfyrirtækisins Auður Capital.

Konum fjölgar í nefndum og ráðum

Hlutfall kvenna í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins hækkaði mjög milli áranna 2008 og 2009. Er það í kjölfar átaks þar sem þess er gætt í ríkara mæli en áður að hlutfall kynja sé sem jafnast, samkvæmt vef stjórnarráðsins.

Á árinu 2009 voru konur skipaðar í nefndir, ráð og stjórnir í 43% tilvika en karlar í 57% tilvika. Árið 2008 var hlutfall kvenna 24% og karla 76%. Ef litið er á stöðu allra nefnda, ráða og stjórna sem starfandi voru árið 2009 er hlutfall kvenna 32% og karla 68%.

Ráðstefna um kyn og loftslagsbreytingar

Föstudaginn 5. febrúar verður málþingið Kyn og loftslagsbreytingar haldið í Háskóla Íslands, stofu 101 Lögbergi, kl. 14.30-16.45. Samstarfsaðilar um málþingið eru Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum, EDDA - öndvegissetur, Jafnréttisstofa og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar.

Handbók Alþjóðalánastofnunarinnar um samfélagslega ábyrgð og kynjajafnrétti

Nýlega kom út á vegum Alþjóðalánastofunarinnar (IFC) handbók um samfélagslega ábyrgð og kynjajafnrétti. Handbókin er afrakstur verkefnis sem ráðgjafahópur við rannsóknarsetur vinnuréttar við Háskólann á Bifröst tók þátt í að vinna. Ráðgjafasjóður Íslands við Alþjóðalánastofnunina, sem utanríkisráðuneytið fjármagnar, styrkti ráðgjafahópinn til verksins.

Útvarpsþáttaröð um konur og sveitarstjórnarmál

Í kjölfar þingsályktunartillögu síðastliðið vor, þar sem Jafnréttisstofu var falið að stuðla að aðgerðum til að auka hlut kvenna í sveitarstjórnum voru gerðir sex útvarpsþættir um stöðu kvenna á sveitarstjórnarstiginu.

Þáttaröðin nefnist Sveitarstjórnarmál - Kjörlendi kvenna en fyrsti þátturinn var sendur í loftið á Rás 1 þann 23. janúar síðastliðinn.

Kvennasáttmáli Sameinuðu þjóðanna

Í tilefni 30 ára afmælis kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna gaf Mannréttindaskrifstofa Íslands út fræðslurit um Kvennasáttmálann.  Kvennasáttmálinn tekur til flestra þátta daglegs lífs. Með aðild að sáttmálanum skuldbinda íslensk stjórnvöld sig til að efla stefnu, lög, stofnanir og viðhorf sem tryggja jafnrétti kynjanna; sáttmálinn kveður á um aðgerðir til að koma í veg fyrir mismunun gagnvart konum á öllum sviðum mannlífsins.

Áhugaverð ráðstefna 10.febrúar - Virkjum karla og konur

Miðvikudaginn 10. febrúar 2010 efna Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráð Íslands, Leiðtoga-Auður, iðnaðarráðuneytið, efnahags- og viðskiptaráðuneyti og Creditinfo til tímamótafundar á Hótel Nordica. Þar verður greint frá því hvernig viðskiptalífið hyggst fjölga konum í stjórnum fyrirtækja.

Eflum lýðræðið - konur í sveitastjórn

Bæklingurinn Eflum lýðræðið konur í sveitastjórn er gefinn út af samgöngu- og sveitastjórnaráðuneytinu og Jafnréttisstofu í tilefni sveitastjórnakosninga 2010.

Ertu með hugmynd í kollinum? Styrkir til atvinnumála kvenna

Félags- og tryggingamálaráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna.  Nánar má lesa um styrkina á síðunni Atvinnumál kvenna þar sem einnig er að finna umsóknareyðublöð, upplýsingar um fyrri úthlutanir o.fl.  Umsóknarfrestur er til 7.febrúar 2010.

 

Málþing um kyn og völd - niðurstöður

Á málþingi Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræði, Jafnréttisstofu og EDDU - öndvegisseturs þann 15. janúar 2010 voru kynntar kynntar niðurstöður íslenska hlutans í samnorræna rannsóknaverkefninu Kyn og völd á Norðurlöndum. Verkefnið var unnið af norrænu kvenna- og kynjarannsóknastofnuninni NIKK að ósk Norrænu ráðherranefndarinnar, en umsjón með íslenskum hluta rannsóknarinnar hafði RIKK.


Leita í sérfræðingagrunni

Leit


Flýtileiðir

Fréttabréf

Smelltu hér til að skrá þig á fréttabréfalistann