Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Styrkir til meistaraverkefna

Jafnréttisnefnd Háskóla Íslands auglýsir tvo styrki fyrir meistaraverkefni lausa til umsóknar. Um er að ræða verkefni á vegum nefndarinnar um aðstæður og upplifun kvenna af námi innan ákveðinna námsgreina á Verkfræði- og náttúruvísindasviði HÍ. Miðað er við lokaverkefni í meistaranámi, að lágmarki 30 ECTS einingar.

Kynjuð hagstjórn

Ríkisstjórnin boðar undirbúning að kynjaðri hagstjórn (gender budgeting).  Skipa á verkefnisstjórn um málið sem á að skila tillögum og áliti innan árs.

Kynjamyndir nýfrjálshyggjunnar

Þorgerður Einarsdóttir og Sigríður Þorgeirsdóttir skrifa grein sem birtist á Vísi.is í dag 9. febrúar 2009 og ber yfirskriftina Kynjamyndir nýfrjálshyggjunnar.

Greinina má nálgast hér.

Afmælismálþing Kvenréttindafélags Íslands - Kreppir að í Kynjaveröld?

Afmælismálþing Kvenréttindafélags Íslands - Kreppir að í kynjaveröld?  Áhrif kreppunnar á stöðu kynjanna.  Þann 27. janúar 2009 kl. 16:15 á Hallveigarstöðum við Túngötu 14.  Allir velkomnir.

Félagsmálaráðherra aðhyllist kynjakvóta

Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, sagði í ávarpi á jafnréttisþingi sem hófst í morgun að hún hallist æ meir að notkun kynjakvóta til þess að uppfylla ákvæði stjórnarskrárinnar um jafnan rétt kvenna og karla og vilji skoða alvarlega setningu laga í því skyni. Ráðherra vísaði í reynslu Norðmanna af lagasetningu í þessum sem náðu þeim árangri með lagasetningu að hlutfall kvenna í stjórnum stórra fyrirtækja fór úr 7% í 40%.

Jafnréttisþing 16.janúar

Jafnréttisþing verður haldið föstudaginn 16. janúar 2009 á Hilton Reykjavík Nordica frá kl. 9-17.  Þingið er öllum opið og ekkert þátttökugjald er en þátttakendur eru hvattir til að skrá sig á vef ráðuneytisins.

Ráðstefna um jafnrétti í Noregi

Ráðuneyti menntamála og rannsókna í Noregi í samstarfi við fimm aðra aðila býður til ráðstefnu í Osló í mars 23.-24. 2009.

Ný heimasíða NIKK

NIKK - Norræna kvenna og kynjarannsóknarstofnunin er komin með nýja heimasíðu sem má skoða hér.  NIKK er

Orkuveitan heiðrar hugvitskonur

Í dag hlutu tvær hugvitskonur viðurkenningu Orkuveitu Reykjavíkur og KVENN, félags kvenna í nýsköpun, fyrir framlag þeirra til nýsköpunar. „Það voru þær Guðrún Guðrúnardóttir og Margrét Ragnarsdóttir, sem tóku við viðurkenningunum úr hendi Guðlaugs G. Sverrissonar, stjórnarformanns Orkuveitu Reykjavíkur við athöfn í höfuðstöðvum fyrirtækisins," segir í tilkynningu frá OR.

Kynbundinn launamunur 19,5%

Kynbundinn launamunur á heildarlaunum, þegar tekið hefur verið tillit til vinnutíma, starfs, menntunar, aldurs, atvinnugreinar, ábyrgðar í starfi og hvort fólk er sjálfstætt starfandi eða launþegar, er 19,5%, samkvæmt launarannsókn, sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir félagsmálaráðuneyti.


Leita í sérfræðingagrunni

Leit


Flýtileiðir

Fréttabréf

Smelltu hér til að skrá þig á fréttabréfalistann