Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Þær segja JÁ

Þær segja JÁFKA og Leiðtogaauður hafa birt heilsíðuauglýsingu í dagblöðum landsins með nöfnum ríflega 100 félagskvenna sem lýsa því að þær muni segja JÁ þegar leitað verður til þeirra um að taka sæti í stjórnum stærstu fyrirtækja landsins

Öld liðin frá því að fyrstu konurnar tóku sæti í bæjarstjórn

100 ára afmæli Þess er nú minnst að öld er liðin frá því að fyrstu konurnar tóku sæti í bæjarstjórn á Íslandi en þann 24. janúar árið 1908 tóku fjórar konur sæti í bæjarstjórn Reykjavíkur

Lög um kynjakvóta í Noregi

Lög um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja hafa tekið gildi í Noregi.

Krossgötur kynjarannsókna - Ráðstefna um stöðu og leiðir kvenna- og kynjafræða

Dagana 9. - 10. nóvember, stendur RIKK fyrir fjórðu ráðstefnu stofnunarinnar um stöðu og leiðir kynjarannsókna í Aðalbyggingu Háskóla Íslands.

Menntaskólinn í Kópavogi fær viðurkenningu Jafnréttisráðs

Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra afhenti viðurkenningu Jafnréttisráðs en það var Menntaskólinn í Kópavogi sem hlaut viðurkenninguna.

Málþing - "Ég þori, get og vil!"

Jafnréttisnefnd Kópavogs heldur málþing um konur í sveitarstjórnum undir yfirskriftinni „ég þori, get og vil!" fimmtudaginn 25. október kl. 17-19 á neðri hæð Gerðarsafns. Tilefnið er að hálf öld er liðin frá því að Hulda Jakobsdóttir varð bæjarstjóri í Kópavogi og þar með fyrsta konan til að gegna stöðu bæjarstjóra á Íslandi.

SPRON í samstarfi við Þróunarbanka Evrópu og Norræna fjárfestingarbankann um lán til kvenna í atvinnurekstri

Athafnalán eru ný lán sem veitt eru vegna rekstrar þar sem konur eru í lykilhlutverki. Lánin bjóðast fyrirtækjum sem eru í eigu kvenna eða rekin af konum og veitir SPRON lánin í samvinnu við Þróunarbanka Evrópu og Norræna fjárfestingarbankann.

Menningar- og minningarsjóður kvenna auglýsir eftir styrkumsóknum

BríetMenningar- og minningarsjóður kvenna auglýsir eftir styrkumsóknum. Umsóknarfrestur er til 5. september.

Skipun í Jafnréttisráð

Hildur JónsdóttirJóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur skipað í Jafnréttisráð. Hildur Jónsdóttir er formaður ráðsins.

Staðalímyndir ein helsta hindrun kvenna á toppinn

Ný rannsókn á vegum Catalyst, samtaka sem vilja stuðla að auknum tækifærum kvenna í viðskiptum, leiddi í ljós að ein helsta hindrun sem konur mæta á leiðinni á toppinn er staðalímyndir. Hin hefðbundna staðalímynd sem tengir leiðtogahlutverkið við karla frekar en konur leiðir til takmarkaðs framgangs kvenna.

Leita í sérfræðingagrunni

Leit


Flýtileiðir

Fréttabréf

Smelltu hér til að skrá þig á fréttabréfalistann