Fréttir
Ţađ er líklegra til árangurs ađ hafa jafnt hlutfall kynja í stjórnun fyrirtćkja
Konum fjölgar í nefndum og ráđum
Hlutfall kvenna í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins hækkaði mjög milli áranna 2008 og 2009. Er það í kjölfar átaks þar sem þess er gætt í ríkara mæli en áður að hlutfall kynja sé sem jafnast, samkvæmt vef stjórnarráðsins.
Á árinu 2009 voru konur skipaðar í nefndir, ráð og stjórnir í 43% tilvika en karlar í 57% tilvika. Árið 2008 var hlutfall kvenna 24% og karla 76%. Ef litið er á stöðu allra nefnda, ráða og stjórna sem starfandi voru árið 2009 er hlutfall kvenna 32% og karla 68%.
Ráđstefna um kyn og loftslagsbreytingar
Handbók Alţjóđalánastofnunarinnar um samfélagslega ábyrgđ og kynjajafnrétti
Útvarpsţáttaröđ um konur og sveitarstjórnarmál
Í kjölfar þingsályktunartillögu síðastliðið vor, þar sem Jafnréttisstofu var falið að stuðla að aðgerðum til að auka hlut kvenna í sveitarstjórnum voru gerðir sex útvarpsþættir um stöðu kvenna á sveitarstjórnarstiginu.
Þáttaröðin nefnist Sveitarstjórnarmál - Kjörlendi kvenna en fyrsti þátturinn var sendur í loftið á Rás 1 þann 23. janúar síðastliðinn.
Kvennasáttmáli Sameinuđu ţjóđanna
Í tilefni 30 ára afmælis kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna gaf Mannréttindaskrifstofa Íslands út fræðslurit um Kvennasáttmálann. Kvennasáttmálinn tekur til flestra þátta daglegs lífs. Með aðild að sáttmálanum skuldbinda íslensk stjórnvöld sig til að efla stefnu, lög, stofnanir og viðhorf sem tryggja jafnrétti kynjanna; sáttmálinn kveður á um aðgerðir til að koma í veg fyrir mismunun gagnvart konum á öllum sviðum mannlífsins.
Áhugaverđ ráđstefna 10.febrúar - Virkjum karla og konur
Eflum lýđrćđiđ - konur í sveitastjórn
Ertu međ hugmynd í kollinum? Styrkir til atvinnumála kvenna
Félags- og tryggingamálaráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna. Nánar má lesa um styrkina á síðunni Atvinnumál kvenna þar sem einnig er að finna umsóknareyðublöð, upplýsingar um fyrri úthlutanir o.fl. Umsóknarfrestur er til 7.febrúar 2010.
Málţing um kyn og völd - niđurstöđur
Á málþingi Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræði, Jafnréttisstofu og EDDU - öndvegisseturs þann 15. janúar 2010 voru kynntar kynntar niðurstöður íslenska hlutans í samnorræna rannsóknaverkefninu Kyn og völd á Norðurlöndum. Verkefnið var unnið af norrænu kvenna- og kynjarannsóknastofnuninni NIKK að ósk Norrænu ráðherranefndarinnar, en umsjón með íslenskum hluta rannsóknarinnar hafði RIKK.
