Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Neyðarstjórn kvenna

Neyðarstjórn kvenna er hópur kvenna sem ákveðið hefur að mynda neyðarstjórn yfir landinu vegna vanhæfis valdhafa.  Hópurinn er opinn öllum konum sem langar að leggja sitt af mörkum til að byggja upp samfélag þar sem jafnræði kvenna og karla ríkir á öllum sviðum.

Jafnréttisviðurkenning Stígamóta afhent

Stígamót afhentu í dag fyrstu jafnréttisviðurkenningu sína við hátíðlega athöfn í Iðnó í tengslum við Evrópumálstofu um kynbundið ofbeldi. 

Viðurkenninguna hlutu þær Þorgerður Einarsdóttir, Margrét Steinarsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir, Katrín Anna Guðmundsdóttir og Matthildur Helgadóttir. Var þeim þakkað starf sitt fyrir samtökin, fyrir kvenréttindabaráttuna og baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi.

Morgunverðarfundur UNIFEM á Íslandi

Líf án ofbeldis er allra réttur

 

-Vinna UNIFEM gegn kynbundnu ofbeldi á heimsvísu-

Þriðjudaginn 25. nóvember stendur UNIFEM á Íslandi fyrir árlegum morgunverðarfundi sínum á Hótel Holti kl. 8:15 – 9:30. Heiðursgestur fundarins verður Gro Lindstad yfirmaður UNIFEM á sviði samstarfs við ríkisstjórnir og þjóðþing. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ávarpar einnig fundinn og nýútkomið tímarit UNIFEM verður kynnt.

Atvinnumál kvenna

Vakin er athygli á vefnum atvinnumál kvenna en þar er að finna upplýsingar um styrki sem veittir eru til atvinnumálakvenna.

Gætum jafnréttis

Bæklingur frá Jafnréttisstofu gefinn út 2007 sem inniheldur jafnréttisgátlista sem er gagnlegur við stefnumótun.

Norræn lönd fremst í jafnréttismálum?

Á mbl.is 12. nóvember birtist frétt sem segir að Norrænu löndin séu fremst í jafnréttismálum.  Lagt var mat í stöðu kynjanna á fjórum sviðum; þátttöku í efnahagsmálum, menntun, stjórnmálum og heilbrigðismálum.

Brautargengi - námskeið fyrir konur með nýjar viðskiptahugmyndir og konur í rekstri

Impra er miðstöð upplýsinga og leiðsagnar fyrir frumkvöðla og lítil fyrirtæki. Impra er annað kjarnasviða Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands með skrifstofur í Reykjavík, á Akureyri, Ísafirði, Höfn í Hornafirði og í Vestmannaeyjum.

Impra veitir öllum frumkvöðlum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Íslandi leiðsögn, sama í hvaða atvinnugrein þau starfa, hvort heldur á sviði iðnaðar, sjávarútvegs, þjónustu eða annarra greina íslensks atvinnulífs.

Kvenlægar áherslur í nýju viðskiptaumhverfi

Í Kastljósinu í gær, 4. nóvember var talað við þrjár konur um hið nýja viðskiptaumhverfi og þær áherslur sem þær vilja sjá í þeirri uppbyggingu sem er nú fyrir höndum. Vakin var athygli á því að af 29 sviðsstjórum hinna nýju ríkisbanka eru einungis 5 konur og af 15 stjórnarmönnum eru 6 konur.

Konan fékk helmingi lægri laun en karlinn - Nýju bankarnir gegn lögunum

Konur hafa haft samband við Jafnréttistofu undanfarið til að vekja athygli á að þeim hafi verið sagt upp en ekki körlum sem unnu við hliðina á þeim. Jafnréttisstofa hefur undanfarið auglýst í blöðum til að benda á að mismunun á grundvelli kyns sé bönnuð.  Ráðningar í nýju ríkisbankana eru í ósamræmi við ný jafnréttislög sem samþykkt voru á þessu ári.

Lykill að velgengni á vinnumarkaði

Bæklingur gefinn út af jafnréttisátaki Háskóla Íslands og Jafnréttistofu og Verslunarmannafélagi Reykjavíkur í samvinnu við Eimskipafélag Íslands, Þekkingasmiðju IMG og ráðstefnuna Konur og lýðræði við árþúsundamót.

Leita í sérfræðingagrunni

Leit


Flýtileiðir

Fréttabréf

Smelltu hér til að skrá þig á fréttabréfalistann