Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

,,Getum sagt skiliđ viđ annars flokks stöđu kvenna"

,,Við erum með aðstæður núna þar sem við getum sagt skilið við samfélag sem byggðist á annars flokks stöðu kvenna. Samfélag sem fólst meðal annars í skotheldu glerþaki og Evrópumeti í kynbundnum launamun.

Halla Tómasdóttir hlýtur jafnréttisviđurkenningu Kópavogsbćjar

Halla Tómasdóttir, annar stofnenda Auðar Capital og starfandi stjórnarformaður, hlýtur jafnréttisviðurkenningu Kópavogsbæjar fyrir frumkvöðlastarf og gott fordæmi kvenna á öllum aldri.

Mun minna talađ viđ konur

Í fréttum þar sem viðtöl eru tekin við fólk eru konur einungis 20 prósent viðmælenda. Yfirgnæfandi meirihluti, eða áttatíu prósent, er karlmenn.

Konur standa saman 11. maí 2008, kl. 13:00

Standing women" er alþjóðleg hreyfing kvenna sem tók höndum saman, í bókstaflegri merkingu, 11. maí á síðasta ári fyrir betri heimi, komandi kynslóðum til handa. Í ár verður sami háttur á og nú með þátttöku íslenskra kvenna en í fyrra stóðu konur saman í 75 löndum.

Forskot međ fjölbreytileika: Málţing um jafnrétti

Föstudaginn 25. apríl standa jafnréttisnefnd Háskóla Íslands, jafnréttisnefnd Kennaraháskóla Íslands og Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands fyrir málþingi um jafnrétti í breiðum grundvelli, með yfirskriftinni „Forskot með fjölbreytileika". Málþingið verður í stofu 132 í Öskju og hefst það kl. 13 og lýkur með móttöku kl. 17.

TENGSLANET IV - Völd til kvenna - ráđstefnan verđur haldin í fjórđa sinn á Bifröst 29.-30. maí nk.

TENGSLANET IV - Völd til kvenna - ráðstefnan verður haldin í fjórða sinn á Bifröst 29.-30. maí nk. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er KONUR og RÉTTLÆTI. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er Judith Resnik prófessor við lagadeild Yale háskóla. Nú þegar hafa hátt í hundrað konur skráð sig enda gott að hafa allan varann á því gistirými er takmarkað. Verði er haldið í lágmarki og þátttaka er öllum opin!

 

Virkjum fjármagn kvenna – námstefna

Föstudaginn 28. mars efna Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri, iðnaðarráðuneytið og viðskiptaráðuneytið til námstefnu um konur, fjármagn og rekstur fyrirtækja. Yfirskrift námstefnunnar er Virkjum fjármagn kvenna.

Opinn fundur međ ţátttöku utanríkisráđherra Líberíu og Íslands 8. mars, kl. 12:00 - 13:30, í Háskóla Íslands

Utanríkisráðherra Líberíu og ÍslandsUtanríkisráðherra Líberíu, Olubanke King Akerele, verður heiðursgestur á opnum fundi sem Háskóli Íslands býður til í samvinnu við utanríkisráðuneytið, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, 8. mars. Fundurinn, sem ber yfirskriftina Konur um heim allan: Samstaða og samvinna, verður haldinn í Háskóla Íslands, Háskólatorgi, stofu 105, og hefst kl 12:00. Auk King Akerele munu Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Joanne Sandler, starfandi aðalframkvæmdastóri UNIFEM í New York og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hafa framsögu.

Konudagurinn á Hallveigarstöđum

KRFÍ - stórBandalag kvenna í Reykjavík, Kvenfélagasamband Íslands og Kvenréttindafélag Íslands standa fyrir opnu húsi á Hallveigarstöðum, Túngötu 14, Reykjavík á konudaginn, sunnudaginn 24. febrúar kl. 15-17.

Styrkir til atvinnusköpunar kvenna

jafnréttiFélags- og tryggingamálaráðuneytið úthlutaði hefur styrkjum til atvinnumála kvenna að fjárhæð 15.790.000 krónur. Styrkjunum er ætlað að styðja við bakið á konum sem hafa áhuga á að hasla sér völl sem sjálfstæðir atvinnurekendur og eru með áhugaverða viðskiptahugmynd

Leita í sérfrćđingagrunni

Leit


Flýtileiđir

Fréttabréf

Smelltu hér til ađ skrá ţig á fréttabréfalistann