Fréttir
Kvennasáttmáli Sameinuðu þjóðanna
Í tilefni 30 ára afmælis kvennasáttmála Sameinuðu þjóðanna gaf Mannréttindaskrifstofa Íslands út fræðslurit um Kvennasáttmálann. Kvennasáttmálinn tekur til flestra þátta daglegs lífs. Með aðild að sáttmálanum skuldbinda íslensk stjórnvöld sig til að efla stefnu, lög, stofnanir og viðhorf sem tryggja jafnrétti kynjanna; sáttmálinn kveður á um aðgerðir til að koma í veg fyrir mismunun gagnvart konum á öllum sviðum mannlífsins.
Þó staða kvenna á Íslandi sé sterk og mikið áunnist í jafnréttismálum í alþjóðlegu samhengi má enn margt betur fara. Kynbundinn launamunur er enn til staðar, valdaójafnvægi í atvinnu og viðskiptalífinu og ofbeldi gagnvart konum er áhyggjuefni. Sér í lagi þar sem afar fá slík mál rata fyrir dómstóla þrátt fyrir að um fimmtungur íslenskra kvenna sé á einhverjum tímapunkti talinn verða fyrir ofbeldi af hendi maka eða fyrrverandi maka.
