Fréttir
Handbók Alþjóðalánastofnunarinnar um samfélagslega ábyrgð og kynjajafnrétti
Markmiðið er einkum að efla vitund fyrirtækja um efnahagslegan ávinning af því að nýta framlag beggja kynja og gæta að jafnrétti - jafnt innan fyrirtækja sem í allri virðiskeðjunni, s.s. gagnvart birgjum, neytendum, samfélaginu og umhverfi. Handbókinni er ætlað að vera til leiðbeiningar varðandi gerð sjálfbærniskýrslna. Slíkar skýrslur eiga að meta stöðu og árangur fyrirtækja um allan heim hvað varðar félagslega ábyrgð og jafnrétti kynjanna. Sérstakt mið er tekið af stöðu nýmarkaðsríkja.
Elín Blöndal, prófessor við lagadeild, stýrði ráðgjafarhópnum en auk þess sátu í honum Ingibjörg Þorsteinsdóttir, dósent við lagadeild og meistaranemarnir Birgir Óli Sigmundsson og Ragnheiður M. Sigurðardóttir sem aðstoðarmenn. Hlutverk hópsins var einkum að útbúa þau viðmið um félagslega ábyrgð og jafnrétti sem lögð hafa verið til grundvallar í lokaskýrslu verkefnisins. Einnig að vinna að rannsóknarþætti verkefnisins og gerð handbókarinnar.
Verkefnið fól í sér frumkvöðlavinnu í samþættingu félagslegrar ábyrgðar fyrirtækja og kynjajafnréttis. Ljóst er að þátttaka ráðgjafarhópsins frá Bifröst skilar skilar aukinni fagþekkingu hér á landi á þessu sviði auk þess sem telja verður að íslensk stjórnvöld hafi með stuðningi við verkefnið átt þátt í mikilvægri þróun á sviði jafnréttismála og félagslegrar ábyrgðar fyrirtækja.
Embedding Gender in Sustainability Reporting - A Practitioner's Guide - handbókina má finna hér.
Tilkynning á vef Rannsóknarseturs vinnuréttar- og jafnréttismála frá 25. nóvember 2009
