Fréttir
Konum fjölgar í nefndum og ráðum
Hlutfall kvenna í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins hækkaði mjög milli áranna 2008 og 2009. Er það í kjölfar átaks þar sem þess er gætt í ríkara mæli en áður að hlutfall kynja sé sem jafnast, samkvæmt vef stjórnarráðsins.
Á árinu 2009 voru konur skipaðar í nefndir, ráð og stjórnir í 43% tilvika en karlar í 57% tilvika. Árið 2008 var hlutfall kvenna 24% og karla 76%. Ef litið er á stöðu allra nefnda, ráða og stjórna sem starfandi voru árið 2009 er hlutfall kvenna 32% og karla 68%.
