Fréttir
Hvers vegna er heilbrigði kynjanna mismunandi? Ráðstefna
Hvers vegna deyja karlmenn yngri en konur og hvers vegna þjást konur meira af sjúkdómum en karlar? Í erindinu verður rætt um félagslegar ástæður mismunandi heilbrigði kynjanna með áherslu á þýðingu kyngervis (gender), einkum ímyndir karlmennskunnar, og reynt að varpa ljósi á helstu orsakir heilsufarslegs ójafnaðar karla og kvenna. Í þessu sambandi er talað um félagslega dreifingu heilbrigði (social distribution of health) og átt við að heilsa og heilbrigði dreifist með ólíkum hætti á þjóðfélagshópa fyrir tilstilli félagslegra þátta. Þannig sýna rannsóknir að dánar- og sjúkdómstíðni kynjanna er t.d. mismunandi eftir því hvaða þjóðfélagshópar eiga í hlut. Þessi heilbrigðismunur á sér flóknar orsakir og styðjast þarf við ólíka túlkunarramma samtímis til skýringar á honum.
Málstofan verður haldin
kl. 12.10-12.55 í stofu L101 að Sólborg við Norðurslóð
Málstofan er öllum opin
ATH! Málstofan verður send út í beinni útsendingu á slóðinni mms://media.unak.is/malstofa
Hægt verður að hlusta á fyrirlesturinn á heimasíðu HA www.unak.is daginn eftir flutning.
