Beint á leiðarkerfi vefsins

Fyrirtæki í nærmynd

Kaffitár

Kaffitár 1Kaffi hefur verið þjóðardrykkur Íslendinga frá byrjun 19. aldar. Nærri tveimur öldum síðar, eða árið 1990, var Kaffitár stofnað til að kynna Íslendingum fyrir ólíkum tegundum af úrvalskaffi, allt frá tæru Keníakaffi með sítruskeim að flauelsmjúku og þéttu Súmötrukaffi. Kaffitár er þó ekki aðeins kaffibrennsla sem selur kaffi í verslunum, heldur einnig kaffihús þar sem expressó er skotið í bolla eftir öllum kúnstarinnar reglum og sérvisku hvers og eins viðskiptavinar. Þjálfun starfsfólks er því mikilvægur þáttur í starfsemi fyrirtækisins, en mikil áhersla er lögð á að þjálfa næmi kaffibarþjóna á minnstu blæbrigði smekks og handbragðs, allt til að eignast kaffibarþjóna á heimsmælikvarða eins og t.d. Immu, Hjört, Erlu og Jan. Og með því hefur fyrirtækið líka eignast viðskiptavini á heimsmælikvarða, sem eru hvati á fyrirtækið að gera alltaf betur.

Baunir Kaffitárs eru valdar af Aðalheiði Héðinsdóttur, kaffimeistara fyrirtækisins, en hún heldur reglulega út í heim og fer víða í leit að ástríðubauninni - en það er nafn fyrirtækisins á hinu allra besta úrvalskaffi. Á þessum ferðum hefur hún kynnst kaffibændum eins og t.d. Ricardo Rosales og fólkinu hans, og þannig komist nær kaffinu og grunneðli þess. Það sem var því aðeins nokkrar úrvalskaffibaunir í upphafi - og viljinn tilKaffitár 2 að bæta kaffimenningu Íslands - er núna orðið að samskiptum við allan kaffiheiminn, við eigendur kaffiekranna, smábændur og starfsfólk akranna, en einnig við kröfur viðskiptavina fyrirtækisins hér heima. Allt þetta eflir fyrirtækið og gerir það skemmtilega flókið í alþjóðlegum og þjóðlegum fjölbreytileika sínum. Í Kaffitári mætast því þessir tveir heimar, suðræn sól og íslenskur eldur, í einum punkti, og úr þessum samruna verður til kaffi sem fyrirtækið ber á borð fyrir hvern og einn með ástríðuna að leiðarljósi.

Fyrirtækjareksturinn er auðvitað einnig hluti af Kaffitári og er kúnst í sjálfu sér, allt frá markaðsmálum að skipulagningu verkþátta. Það hefur því reynst Kaffitári mikilvægt að hafa fjölbreytta þekkingu innan fyrirtækisins, og margvíslegt starfsfólk með mismunandi menntun. Og hver og einn þarf að vera skapandi á sínu sviði, og þannig að hver eining kallist á við aðra - og svo þann vilja fyrirtækisins að geta lagt heiminn ilmandi að vörum þeirra sem vilja njóta þess að drekka gott úrvalskaffi. Í þessu samhengi, og til að opna mönnum sýn á víðfeðmi starfseminnar, varð til slagorðið: ,,Kaffitár, leggur heiminn að vörum þér."  


Leita í sérfræðingagrunni

Leit


Flýtileiðir

Fréttabréf

Smelltu hér til að skrá þig á fréttabréfalistann