Beint á leiðarkerfi vefsins

Fyrirtæki í nærmynd

Verkefnalausnir ehf.

Verkefnalausnir stór 01Til þess að hugmynd að verkefni verði að veruleika þarf að skapa, skipuleggja, kynna og að lokum framkvæma. Fyrirtækið Verkefnalausnir ehf. býður upp á hagnýtar lausnir á sviði verkefnastjórnunar í víðustu merkingu þess orðs; forrit, fræðslu, ráðgjöf og verkefnastjórnun.

Elín Þ. Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri Verkefnalausna stofnaði fyrirtækið í október árið 2005. Elín er iðnrekstrarfræðingur frá Tækniháskóla Íslands og lauk síðar námi í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá HÍ. Eftir að hafa starfað við gæða- og verkefnastjórnun fyrir fyrirtæki, stofnanir og samtök um áraskeið ákvað hún að stofna sitt eigið fyrirtæki. Viðskiptahugmynd Elínar var að bjóða fyrirtækjum, stofnunum, samtökum og einstaklingum upp á lausnir í verkefnastjórnun til að spara þeim tíma og auka afköst.

Elín segir að fyrirtækið hafi verið stofnað í kringum hugbúnaðinn MindManager og hefur sala á hugbúnaðnum og námskeiðahald um notkun hans hefur verið meginþáttur í rekstri Verkefnalausna frá upphafi. MindManager byggir á hugmyndum um hugkort og nýtist einkar vel til að halda utan um hverskonar verkefni og skiptir umfang þeirra ekki máli. Hugbúnaðurinn hefur verið notaður með góðum árangri, hvort sem um er að ræða einstaklinga eða nemendur í minni verkefnum eða stjórnendur og starfsmenn í stærri fyrirtækjum eða stofnunum. Með MindManager er hægt að auðvelda alla teymisvinnu, skýrslugerð, fundastjórnun, upplýsingastjórnun, hugarflug og verkefnastjórnun almennt.

Í upphafi var Elín eini starfsmaður Verkefnalausna og var í senn framkvæmdastjóri, sölustjóri, MindManager leiðbeinandi og tók að sér tímabundna stjórnun verkefna fyrir fyritæki og stofnanir. Það kom strax í ljós að mikil eftirspurn var eftir þjónustu og vöru Verkefnalausna og hefur fyrirtækið staðið fyrir fjölda námskeiða og kynninga á MindManager og skrifað undir samstarfssamning við Háskóla Íslands og Háskóla Reykjavíkur. Í mars 2006 kom Sigrún Stefánsdóttir inn í fyrirtækið sem meðeigandi og verkefnisstjóri.

Sigrún er kerfisfræðingur að mennt, starfað lengi í hugbúnaðargeiranum og hefur lokið námi í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun eins og Elín. Undir sameiginlegri stjórn þeirra hefur fyrirtækið haldið áfram að vaxa og í dag eru starfsmennirnir orðnir alls fimm og starfsemin skiptist í fjögur svið; sala á MindManager ásamt fleiri hugbúnaðarlausnum sem vinna með MindManager, í öðru lagi fræðsla og þjálfun, m.a. kennsla í verkefnastjórnun og notkun Mind¬Manager. Í þriðja lagi tímabundin stjórnun verkefna fyrir fyrirtæki og stofnanir og í fjórða lagi ráðgjöf. Verkefnalausnir eru einnig endursöluaðili fyrir forritin, JCVGantt®, Map4Plan og NotesLinker® og Visual Project Maps.

Heimasíða Verkefnalausna

Mynd: Sigrún Stefánsdóttir og Elín Þ. Þorsteinsdóttir, eigendur Verkefnalausna ehf. 


Leita í sérfræðingagrunni

Leit


Flýtileiðir

Fréttabréf

Smelltu hér til að skrá þig á fréttabréfalistann