Fyrirtæki í nærmynd
Talent Ráðningar
Talent Ráðningar tók til starfa sl. haust og að fyrirtækinu standa þær Lind Einarsdóttir og Mjöll Jónsdóttir. Báðar hafa þær menntun og reynslu í ráðgjöf og ráðningarmálum, en frá ólíkum hliðum. Þær hafa komið sér vel fyrir á nýstandsettri skrifstofu Talent Ráðninga á annarri hæðinni að Vitastíg 13 í Reykjavík. Þar hafa þær breytt fyrrum lagerhúsnæði í mjög notalega móttöku fyrir fólk í atvinnuleit og fyrir forsvarsmenn fyrirtækja í leit að góðu starfsfólki. Fyrirtækið hefur farið vel af stað og er nú með stóran og góðan viðskiptavinahóp sem leitar til þeirra aftur og aftur. Það er því óhætt að segja að viðbrögðin við þessari nýjung á ráðningamarkaðinum hafi verið frábær.
Mjöll segir það enga tilviljun að þær hafi ráðist í það verkefni að opna ráðningastofu. „Ég var búin að hugsa þetta mjög lengi og við vorum báðar búnar að ganga með þetta í maganum í fjölda ára. Það er margt sem maður er búinn að gera sem hefur beint manni í þessa átt. Hins vegar var ótrúlega merkilegt þegar við settumst saman niður eftir að hafa ekki hist í nokkur ár, að þarna sátum við báðar með sama drauminn í maganum og ákváðum því að sjálfsögðu bara að taka höndum saman og láta þessa drauma okkar rætast!" Mjöll er með BA gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands og lokaritgerð hennar fjallaði um samspil tilfinninga og hegðunar. Mjöll segist alltaf hafa haft mikinn áhuga á starfsmannastjórnun og hefur hún setið fjölda námskeiða á sviði viðskipta, m.a. sölunámskeið Dale Carnegie og námskeið á sviði leiðtogahæfni og þjónustustjórnunar bæði hérlendis og erlendis. Mjöll hefur meðal annars starfað sem verkefnastjóri hjá Skref fyrir skref þar sem hún ásamt fleiru um námskeið sem fjölluðu um þjónustu, liðsheild, leiðtogahæfni, tjáningu og sjálfstraust. Hún starfaði einnig í nokkur ár hjá Glitni sem ráðgjafi einstaklinga og síðast sem ráðgjafi í ráðningum hjá Ráðningarþjónustunni.
„Ég vann hinum megin við borið og því ég starfaði áður sem starfsmannastjóri hjá Focal Consulting, Alcan á Íslandi og Samskipum," segir Lind. „Þar var ég einmitt í miklum samskiptum við allar ráðningaþjónusturnar. Ég vann þar við að ráða fólk og var þá að kaupa þjónustu af ráðningastofnunum. Þá hugsaði ég með mér að það gæti verið gaman að fást við þetta á eigin forsendum. Þannig kviknaði hugmyndin að þessu." Lind er viðskiptafræðingur að mennt frá Háskóla Íslands með áherslu á mannauðsstjórnun og með mastersgráðu í stjórnun og stefnumótun frá sama skóla. Lokaritgerðir Lindar endurspegla vel áhuga hennar á hinum mannlega þætti í viðskiptum og var BS ritgerðin um mannauðsstjórnun framtíðarinnar og MS ritgerðin um menningu og viðskiptatækifæri í Kína. Lind hefur víðtæka reynslu af starfsmannastjórnun og mannaráðningum og hefur sem fyrr segir starfað sem starfsmannastjóri í fjölmörg ár.
Lind og Mjöll eru sammála um mikla nauðsyn þess að fólk upplifi notalegt viðmót þegar það leitar til Talent því það er allt of algengt að fólk finni fyrir miklum kvíða og óþægindum þegar það þarf að leita sér að vinnu. „Sumum finnst óþægilegt að koma í atvinnuviðtöl og upplifa það jafnvel sem niðurlægingu. Það þarf hins vegar alltaf að komast að ákveðnum upplýsingum um viðkomandi, en þá er ekki sama hvernig það er gert," segir Lind. „Við leggjum okkur fram við að sýna umsækjendum okkar góða athygli og virðingu." „Að sama skapi þá eruð við auðvitað að vinna fyrir fyrirtækin sem til okkar leita og í okkar huga er það algert grundvallaratriði að þjónustan sem við veitum sé til fyrirmyndar og byggð á heiðarleika og ábyrgð. Við viljum byggja upp traust og þekkingu á þörfum hvers og eins fyrirtækis og vera persónulegar í þjónustu okkar".
Hér á landi hafa nokkrar ráðningastofur fest sig í sessi. Á þessum stofum er að finna mismunandi fólk með mismunandi áherslur. Störfin sem verið er að ráða í eru líka mismunandi og aðferðarnar sem notaður eru. Talent Ráðningar státa sig af því að skara fram úr í persónulegri og góðri þjónustu. Mjöll og Lind tóku þá ákvörðun að rukkum ekkert nema þegar af ráðningu verður og er Talent Ráðningar er eina stofan með þessa árangurstengdu stefnu. Einnig er 3ja mánaða ábyrgð á ráðningunum hjá Talent og verðin eru mjög samkeppnishæf.
Mynd: Lind Einarsdóttir og Mjöll Jónasdóttir
