Beint á leiðarkerfi vefsins

Kona í nærmynd

Anna Karlsdóttir

Anna Karlsdóttir er lektor í landafræði og ferðamálafræði.  Áhersla hennar er á ferðamennsku sem samfélagsbreytandi afl og umbreytingar atvinnuhátta á Norðurslóðalöndum.  Anna er meðlimur í framtíðarlandinu, neyðarstjórn kvenna og í stjórn samtaka um bíllausan lífsstíl.

Ásthildur Sturludóttir

Ásthildur Sturludóttir er kynningarstjóri Háskóla Íslands.  Hún er með MPA próf í opinberri stjórnsýslu frá PACE University í New York.  Ásthildur situr í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins.

Sigríður Þrúður Stefánsdóttir

Sigríður Þrúður Stefánsdóttir er framkvæmdastjóri og ráðgjafi hjá HRM rannsóknir og ráðgjöf.  Hún er auk þess kennari og leiðbeinandi við Ferðamálaskólann í Kópavogi og við HR.

Aldís Norðfjörð

Aldís Magnea Norðfjörð er arkitekt og starfar hjá Arkís ehf.  Sérhæfing hennar er á sviði skipulagsmála og vistvæns umhverfis.

Ólína Þorvarðardóttir

Ólína Þorvarðardóttir er Dr.Phil, rithöfundur, fræðimaður og háskólakennari.  Hún hefur sinnt ótalmörgum félagsstörfum gegnum tíðina s.s. fyrir Menningarráð Vestfjarða, Vestfjarða-akademíuna og verið borgarfulltrúi í Reykjavík.

Þórdís Þórðardóttir

Þórdís Þórðardóttir er lektor í uppeldis- og menntunarfræðum á Menntavísindasviði HÍ.  Sérhæfing hennar er m.a. í menntun og kyngervi, þróun uppeldishugmynda og skólastarfs og menntun leikskólakennara.  Þórdís er í doktorsnámi sem hún ætlar að ljúka fyrir lok ársins 2009.

Auður Styrkársdóttir

Auður Styrkársdóttir er forstöðukona Kvennasögusafns Íslands.  Sérhæfing hennar snýr að konum í stjórnmálum, kvennasögu og íslenskum stjórnmálum.  Auður tekur þátt í starfi KRFÍ, Feministafélags Íslands og Geðhjálpar.

Sólveig Dagmar Þórisdóttir

Sólveig Dagmar Þórisdóttir er framkvæmdastjóri Auglýsingastofu Íslands ehf.  Hún er með MA gráðu í hagnýtri menningarmiðlun og situr í stjórn Neytendasamtakanna.

Helga Rut Guðmundsdóttir

Helga Rut Guðmundsdóttir er lektor í tónmennt við Menntavísindasvið HÍ.  Helga er PhD á sviði tónlistarmenntunar og sérhæfð í tónlist með ungum börnum og tónlistarþroska barna.

Arnheiður Sigurðardóttir

Arnheiður Sigurðardóttir er lýðheilsu og hjúkrunarfræðingur B.Sc MPH, IBCLC, LLL-leader.  Hún starfar sem framkvæmdastjóri Ýmus ehf og Medus ehf.


Leita í sérfræðingagrunni

Leit


Flýtileiðir

Fréttabréf

Smelltu hér til að skrá þig á fréttabréfalistann