Kona í nærmynd
Ólína Þorvarðardóttir
Nafn: Ólína Þorvarðardóttir
Starf: Sérfræðingur við Stofnun fræðasetra Háskóla Íslands þar sem ég er að ljúka 2ja ára tímabundnu verkefni. Annars rithöfundur, fræðimaður og háskólakennari.
Menntun: Dr.Phil
Sérhæfing: Íslenskar bókmenntir, þjóðfræði, menntamál og almenn þjóðfélagsmál.
Félagsstörf: Varaformaður Menningarráðs Vestfjarða, formaður Vestfjarða-akademíunnar (2006-2008), formaður stjórnar Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða (2001-2006) auk fjölda annarra félags- og trúnaðarstarfa m.a. sem borgarfulltrúi og borgarráðsmaður í Reykjavík 1990-1994.
Áhugamál: Eru ótalmörg og mismunandi, til dæmis stjórnmál, bókmenntir, björgunarsveitarstarf, hundaþjálfun, dans, hestamennska, hressilegar rökræður, kórsöngur.
Lífsmottó: Fleira þarf í dansinn en fagra skóna.
