Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

Styrkir til meistaraverkefna

Jafnréttisnefnd Háskóla Íslands auglýsir tvo styrki fyrir meistaraverkefni lausa til umsóknar. Um er að ræða verkefni á vegum nefndarinnar um aðstæður og upplifun kvenna af námi innan ákveðinna námsgreina á Verkfræði- og náttúruvísindasviði HÍ. Miðað er við lokaverkefni í meistaranámi, að lágmarki 30 ECTS einingar.
 
Annar styrkurinn verður veittur til eigindlegrar athugunar á viðfangsefninu og hinn til megindlegrar athugunar. Beita skal kynjafræðilegu sjónarhorni í báðum verkefnum.
 
Æskilegt er að verkefnin tvö verði unnin í samvinnu. Á vegum nefndarinnar er starfandi bakhópur sem mun styðja við vinnu styrkþega og funda með þeim reglulega, og í honum sitja jafnréttisfulltrúi HÍ og hópur fræðimanna. Verkefnið getur hafist í sumar og er miðað við að því ljúki á vormisseri 2010.
 
Eitt meginmarkmið verkefnisins er að greina hvaða aðstæður innan háskólaumhverfisins hafi áhrif á að konur eru í töluverðum minnihluta á þeim námsleiðum sem um ræðir, þrátt fyrir að meirihluti stúdenta í HÍ séu konur.
 
Hvor styrkur verður að upphæð kr. 450.000. Styrkurinn verður greiddur út í tvennu lagi, fyrri helmingur þegar þriðjungi vinnunnar er lokið að mati leiðbeinanda og síðari helmingur þegar verkefni er lokið og nefndinni fært eintak. Allar nánari upplýsingar veitir Arnar Gíslason, jafnréttisfulltrúi HÍ, í síma 525-4095, eða í tölvupósti (arnarg@hi.is).
 
Umsóknarfrestur er til 1. júní 2009
 
Nauðsynlegt er að umsækjendur búi yfir þekkingu á eftirfarandi sviðum:
  -Kynjafræði
  -Eigindlegri eða megindlegri aðferðafræði (undirbúningur, framkvæmd, úrvinnsla)
 
Æskilegt er að umsækjendur búi yfir þekkingu á eftirfarandi sviðum, eða séu tilbúnir að afla sér hennar:
  -Verkfræði og/eða raunvísindum (saga greinanna og þróun, staða kynjanna í þessum greinum, grunnskilningur á umfjöllunarefni greinanna)
  -Kennslufræði og kennslumenningu
 
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af rannsóknavinnu í samstarfi við aðra
 
Umsóknir með sem gleggstum upplýsingum um menntun og reynslu umsækjanda, sendist Háskóla Íslands, Jafnréttisnefnd, Suðurgötu, 101 Reykjavík fyrir 1. júní 2009.

Leita í sérfræðingagrunni

Leit


Flýtileiðir

Fréttabréf

Smelltu hér til að skrá þig á fréttabréfalistann